«Flóð: 05 – Björgunarafrekið sem týndist» by Björn Thors,Hrafnhildur Hagalín
Íslenska | ISBN: 9789179072872 | MP3@64 kbps | 44 min | 20.3 MB
Íslenska | ISBN: 9789179072872 | MP3@64 kbps | 44 min | 20.3 MB
Stórt snjóflóð féll á Flateyri á Vestfjörðum árið 1995. Hvernig á að segja svona viðkvæma sögu? Samhliða leiksýningunni Flóð, sem var á fjölum Borgarleikhússins, unnu Björn Thors og Hrafnhildur Hagalín 10 þátta hlaðvarp um tildrög verksins, sköpunarferlið og sögu snjóflóðsins.
Leikverkið sjálft er svokallað heimildaverk og byggir á viðtölum Björns og Hrafnhildar við aðstandendur og eftirlifendur snjóflóðsins sem féll á Flateyri. Í hlaðvarpinu er skyggnst bak við sköpunarferlið og tildrög verksins könnuð sem og viðbrögð leikhússins, viðbrögð viðmælenda og aðstandenda, óvæntar uppákomur sem verða á leiðinni og vangaveltur höfunda um verkefnið. Inn í þetta fléttast svo viðtölin sjálf og saga snjóflóðsins á Flateyri. Björn og Hrafnhildur leiða hlustendur í gegnum þættina líkt og sögumenn, og gefa þeim þannig innsýn í flókið ferli leikritunar, heimildaöflunar og úrvinnslu.
Í fimmta þætti af tíu kemur áhöfnin á togaranum Pétri Jónssyni við sögu en skipverjar tóku þátt í björgunaraðgerðum með heimamönnum áður en hjálparsveitir komu til Flateyrar.
Umsjón: Björn Thors og Hrafnhildur Hagalín.
Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir
Framleiðendur: Rás 1 og Borgarleikhúsið
Heimildaserían Flóð var unnin í samstarfi við Borgarleikhúsið og Rás1. Serían var fyrst flutt á Rás1.